Nielsen með nýja tvíhendu á teikniborðinu
Um þessar mundir er Nielsen teymið að prófa nýja tvíhendu, en vonir standa til að hún verði tilbúin fyrir veiðitímabilið 2011. Hugmyndin er að framleiða framúrskarandi stöng sem er bæði létt og meðfærileg, en væri jafnframt vinnuhestur með tilliti til aðstæðna á Íslandi.Verður stöngin unnin úr japönsku grafíti með hjólasæti úr hertu flugvélaáli, og því mjög vandaðar. Stangirnar munu koma í fjórum hlutum, verða fjórtán fet, fyrir línuþyngdir #9-11. Vinnuheitið á þessum stöngum er Nielsen FREEFLEX.






